Innskráning nemenda

Notandi:


Lykilorð:




Vorferð 10.bekkjar í Skagafirði

10.bekkur lagði af stað í vorferð í gær. Gærdagurinn fór í að koma sér fyrir og eftir kvöldverð var farið í hópeflisleiki fram eftir kvöldi í dásamlega köldu veðri.

Flestir komnir á kodda og sofnaðir uppúr miðnætti. Dagurinn í dag var tekinn snemma með ræsingu kl. 7:00 og morgunverð í kjölfarið. Síðan var stefnan tekin á Skagafjörð og þar höfum við eitt deginum í rafting, paint ball og fjósaskoðun!í dásamlegu veðri. Allt hefur gengið vel og allir svaka glaðir. Næst á dagskrá er sund og kvöldverður í Varmahlíð.  Myndir úr ferðinni er hægt að sjá hér til hliðar- Myndir-Vorferð 10.bekkur 2010.




Réttarholtsskóli | Réttarholtssvegi 108 Reykjavík | Sími 5532720 | Netfang: rettarholtsskoli[at]reykjavik.is