Skólareglur
Í Aðalnámskrá grunnskóla er kveðið skýrt á um rétt nemenda til að hafa vinnufrið í skólanum. Þar segir:
"Ein af grundvallaréttindum nemenda eru þau að hafa vinnufrið í skólanum þannig að þeir geti náð sem bestum tökum á náminu og að kennslan nýtist þeim sem best". (1999:49)
Reglur Réttarholtsskóla eru samdar í samráði við nemendur og starfsfólk skólans. Reglur skólans eru í meginatriðum settar fram í jákvæðum anda til leiðbeiningar um framkomu og samskipti milli nemenda og starfsfólks.
Nemendur eiga rétt á menntun sem laðar fram hæfileika hvers einstaklings. Starfsfólki og nemendum ber að skapa aðstæður sem gera öllum kleift að ná þessu marki. Í því felst að allir sem í skólanum eru eiga að temja sér eftirfarandi grundvallarreglur.
AÐ VERA TILLITSÖM/SAMUR
Virtu rétt einstaklingsins og forðastu orð og athafnir sem misbjóða öðrum.
AÐ VERA KURTEIS
Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
AÐ VERA SAMVINNUÞÝÐ/UR
Allir þurfa að læra að vinna með öðrum.
AÐ VERA VINGJARNLEG/UR
Vingjarnleg framkoma stuðlar að vellíðan allra.
AÐ VERA VINNUSÖM/SAMUR
Gerðu þitt besta.
AÐ VERA HEIÐARLEG/UR
Sýndu öðrum að þér sé treystandi.
AÐ VANTREYSTA EKKI ÖÐRUM AÐ ÁSTÆÐULAUSU
Trúðu því að aðrir vilji raunverulega aðstoða þig.
AÐ VERA ÁBYRG/UR
Berðu ábyrgð á eigin orðum og gerðum.
Til þess að þessar grundvallarreglur nái fram að ganga þurfum við m.þ a. að
vera stundvís
ávarpa aðra kurteislega
hefja vinnu í upphafi kennslustundar
forðast hróp, móðganir og blótsyrði
koma undirbúin í kennslustund
hafa nauðsynleg gögn meðferðis í allar kennslustundir
bera virðingu fyrir umhverfi okkar, jafnt úti sem inni
forðast hlaup og stympingar
hvetja hvert annað á jákvæðan hátt
MUNIÐ
Að þið eigið rétt á að vera í friði í skólanum. Ef svo er ekki getið þið leitað til
hvaða starfsmanns sem er um aðstoð. Ætíð er fyllsta trúnaðar gætt.
Verið tilbúin að vinna með hverjum sem er í hópnum.
Biðjið um hjálp þegar nauðsyn krefur en bíðið þar til röðin kemur að ykkur.
Takið leiðbeiningum á jákvæðan hátt.
Hlýðið starfsfólki skólans.
Komið á réttum tíma í allar kennslustundir.
Forföll ber að tilkynna af forráðamönnum.
Námsbækur eru eign skólans. Nemendum ber að fara vel með þær eins og
aðrar eigur skólans. Ef bók glatast eða tjón er unnið þarf nemandi sjálfur að bæta það.
Skiljið aldrei eftir verðmæti á glámbekk.
Sumt er bannað í Réttarholtsskóla, stundum vegna þess að lög kveða á um það.
Áfengisneysla
Einelti
Kynjamisrétti
Kynþáttafordómar
Ofbeldi
Ógnandi framkoma
Reykingar
Sóðaskapur
Skemmdarverk
Skróp
Þjófnaður
Reykingar
Reykingar eru bannaðar í Réttarholtsskóla og umhverfi hans. Foreldrum verður strax gert viðvart ef nemendur virða ekki þessa reglu.
Notkun farsíma
Skólinn gerir ekki athugasemdir við að nemendur komi með farsíma í skólann, en það á að vera slökkt á símum í kennslustundum. Ef kennarar verða varir við símanotkun í tímum eða ef hringt er í símann verður hann tekinn af nemanda og afhentur skólastjóra. Foreldrar verða síðan að sækja símann til skólastjóra. Þessi regla er sett til að koma í veg fyrir truflun á kennslu.