Hlutverk umsjónarkennara
Í lögum um grunnskóla (nr. 91, 2008) er kveðið á um að hlutverk umsjónarkennara sé að fylgjast náið með námi nemenda sinni og þroska, líðan og almennri velferð, leiðbeina þeim í námi og starfi, aðstoða og ráðleggja þeim um persónuleg mál og stuðla að því að efla samstarf skóla og heimila. Í Réttarholtsskóla hafa eftirfarandi verkefni verið falin umsjónarkennurum:
- Að fylgjast með líðan og námi nemenda sinna.
- Að skapa góðan bekkjaranda hjálpa nemendum að móta vinnureglur.
- Að ræða við nemendur um umgengni í stofum, sal og göngum skólans. Ennfremur um framkomu í ferðalögum og öðrum uppákomum á vegum skólans.
- Að fylgjast vandlega með mætingum nemenda og grípa til aðgerða eftir því sem þörf krefur.
- Að kynna nemendum skólareglur og ræða við þá um líðan, hegðun o.þ.h.
- Að fylgjast vel með að einstaklingar aðlagist félagahópnum og leita ráðgjafar ef upp kemur einelti (sbr. eineltisáætlun Réttarholtsskóla) eða aðrir erfiðleikar í félagahópnum.
- Að hafa samband við foreldra vegna málefna einstaklinga.
- Að leita eftir námsaðstoð eða annarri aðstoð fyrir einstaklinga sem þess þurfa. Einnig að leita úrræða til handa nemendum ef á þarf að halda s.s. vísa til sérfræðinga og vísa málefnum einstaklinga eða hópa til nemendaverndarráðs ef á þarf að halda.
- Að skipuleggja viðtöl við foreldra á foreldradögum og hafa þá tiltækar upplýsingar um nám nemenda í öllum námsgreinum.
- Að afla upplýsinga um greiningar og sértæk mál einstakra nemenda og upplýsa aðra starfsmenn, en gæta samt trúnaðar varðandi einkamál.
- Að vera málsvari nemenda sinna og eftir atvikum tengiliður milli skólastjórnar, nemenda og foreldra.