Innskráning nemenda

Notandi:


Lykilorð:



Valgreinar í 9. og 10. bekk
Í  Aðalnámskrá grunnskóla er gert ráð fyrir að nemendur í 9. og 10. bekk grunnskóla eigi kost á að velja hluta námsgreina sinna.  Samkvæmt námskránni eru skyldugreinar í 9. og 10. bekk eftirtaldar:  Íslenska, stærðfræði, danska, enska, íþróttir, lífsleikni, náttúrufræði og samfélagsgreinar.
 
Í Aðalnámskránni segir:

    Í 9. og 10. bekk er gert ráð fyrir að einstakir skóla skipuleggi tæplega 30% heildartímans.  Ætlast er til að í þessum bekkjum sé nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið.  Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa.
    Með þessu vinnst einkum þrennt.  Í fyrsta lagi er ekki horfið frá sjónarmiðum um nauðsyn almennrar menntunar á grunnskólastigi,  samanber ákvörðun um kjarnagreinar og viðmiðunarstundaskrá.  Í annan stað er nemendum gefinn kostur á því með vali að nálgast tiltekinn greinasvið eftir áhuga eða fyrirætlunum um framhaldsnám. Í þriðja lagi gefst nemendum kostur á að velja sig frá greinum eða námssviðum sem ekki höfða til þeirra eða minni þörf er á miðað við framtíðaráform.

Í 9. bekk velja nemendur 2-4 greinar en 4-6 í 10. bekk. Nemendur fá valgreinabæklinga á vorönn þar sem námsgreinum er lýst og valið útskýrt nánar.
Mikilvægt er að nemendur velji valgreinar í samræmi við áhuga og hæfileika.  Einnig þurfa þeir að hafa í huga hvert þeir stefna að loknu skyldunámi. 




Réttarholtsskóli | Réttarholtssvegi 108 Reykjavík | Sími 5532720 | Netfang: rettarholtsskoli[at]reykjavik.is