Námsver
Námsver er starfrækt við skólann. Stuðningskennsla fer fram í námsverinu. Boðið er upp á stuðning í kjarnagreinunum fjórum: íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Um er að ræða stuðning til lengri eða skemmri tíma. Enn fremur er boðið upp á aðstoð við próftöku í samræmi við greindan vanda einstakra nemenda.
Markmið námsvers eru
· að koma til móts við þarfir nemenda
· að bjóða nemendum námskeið í afmörkuðum þáttum náms
· að veita nemendum aðstöðu og stuðning við heimanám
· að veita nemendum aðstoð við próftöku
· að leggja áherslu á samvinnunám og jafningjafræðslu
· að styrkja sjálfsmynd og sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
Námsefni er aðlagað nemendum í samráði við umsjónarkennara og fagkennara. Áhersla er lögð á að starfsemi námsversins sé eðlilegur þáttur í daglegu starfi innan skólans, þannig að nemendur geti óskað eftir stuðningi hvenær sem þeir telja sig þurfa á slíkri þjónustu að halda .
Þjónusta við nemendur með sértæka námserfiðleika
Þeir nemendur sem eiga við lestrarerfiðleika að etja, fá ráðgjöf og eiga kost á að fá hljóðbækur á skólasafni. Einnig hafa þeir, sem hafa skilgreindan lestrarvanda (dyslexia), aðgang að Blindrabókasafni.
Á prófadögum geta nemendur sem þurfa fengið lengri próftíma. Óskir um önnur frávik við próftöku þurfa nemendur og forráðamenn að sækja um hjá umsjónarkennara, námsráðgjafa eða umsjónarmanni í námsveri. Þar má nefna stækkað letur á prófblaði, aðstoð við lestur prófverkefna eða munnleg próf. Sérstakar reglur gilda um samræmd próf í 10. bekk, sem Námsmatsstofnun setur. Þær reglur eru kynntar nemendum sem í hlut eiga hverju sinni.