Námsmat
Nemendur og foreldrar þeirra fá afhentar umsagnir um stöðu í námi í lok október í viðtali á foreldradegi. Einnig meta nemendur eigin frammistöðu.
Formlegt námsmat fer fram á prófadögum í janúar og maí. Nemendur fá þá einkunnir fyrir vinnu og þekkingu og gildir hvor um sig 50% af lokaeinkunn annarinnar. Lokaeinkunn haustannar og lokaeinkunn vorannar gefa árseinkunn. Hvor um sig gildir 50%.
