Skólasafnið
Markmið safnsins eru m.a. að
- vera virkur þáttur í fræðslu- og uppeldisstarfi skólans
- tryggja að safnkosturinn sé í tengslum við námsefni skólans og aðgengilegur nemendum og starfsliði hans
- veita nemendum þjálfun og leiðbeina þeim í notkun bókasafna, öflun heimilda og úrvinnslu þeirra
- örva nemendur til lesturs góðra bóka, þeim til fróðleiks og skemmtunar
Útlán eru til nemenda, kennara og annars starfsfólks skólans. Útlánstími er tvær vikur. Handbækur eru ekki lánaðar út. Nemendur hafa aðgang að nettengdum tölvum á safninu.
Á safninu er aðstaða fyrir nemendur til heimanáms og verkefnavinnu. Skólasafnskennari sér um að panta bækur, tímarit og önnur gögn. Hann annast einnig millisafnalán og samskipti við önnur söfn. Flokkun og skráning er þó aðallega í höndum Skólasafnamiðstöðvar.
Á skólasafninu fá nemendur tilsögn í flokkunarkerfi safnsins. Skólasafnskennari aðstoðar við heimildaleit þegar kennarar koma með bekki á safnið, sér um heimildaöflun fyrir verkefni.
Ábendingar um bókakaup frá nemendum og kennurum eru vel þegnar.
Safnið er opið sem hér segir:
- Mánudaga kl. 08:05-09:30 og 11:30-13:00
- Þriðjudaga kl. 08:05-15:00
- Miðvikudaga kl. 08:05-13:00
- Fimmtudaga kl. 08:05-15:00
- Föstudaga kl. 08:05-12:00