Áætlun um móttöku nemenda með annað móðurmál en
íslensku.
Við fyrstu komu í
skólann fær fjölskyldan afhent innritunarblað og bókaður er tími fyrir
móttökuviðtal.
Mikilvægt er að sá
sem tekur við bókuninni skrái niður nafn nemandans, fæðingarár, þjóðerni, tungumál
og símanúmer foreldra til þess að tryggja góðan undirbúning fyrir sjálft
móttökuviðtalið.
Móttökuviðtal.
- Á þennan fund mæta auk
foreldra og nemandans, skólastjóri, umsjónarkennari, námsverskennari,
námsráðgjafi og túlkur sem skólinn útvegar.
- Óskað er eftir að foreldrar komi með á þennan fund upplýsingar um
skólagöngu barnsins, námsframvindu,námsbækur ef kostur er, heilbrigðis og
bólusetningavottorð.
- Foreldrar og nemandi eru inntir eftir hinum ýmsu upplýsingum sem
telja má að geti skipt máli fyrir nemandann að skólinn hafi. Þau atriði er á minnisblaði sem skólinn
hefur útbúið.
- Nemandi og foreldrar eru upplýstir um starfsemi skólans og annað
sem nauðsynlegt er fyrir foreldra og nemanda að vita um.
- Ákveðin er tímasetning fyrir annað viðtal sem skal fara fram innan
tveggja mánaða.
Aðlögun
Í Réttarholtsskóla er hlutverk umsjónarkennara að undirbúa bekkinn
og faggreinakennara til að taka á móti nýjum nemenda og sjá um að styðja
nemandann við að kynnast og eignast félaga í skólanum. Umsjónarkennari fær 2 – 5 nemendur til þess að
fylgja nemandanum um skólann og vera honum innan handar. Umsjónarkennari hvetur foreldra til að efla
samskipti sín á milli þátttöku í skólasamfélaginu. Skólinn leggur áherslu á að
foreldrar séu í nánu sambandi við skólann og þeir upplýstir um hvernig þeir geta
stutt sitt barn og aðstoðað við kynningu á sinni menningu.
Við upphaf skólagöngu þarf að meta stöðu nemandans í öllum
námsgreinum og aðlaga það námsefni sem verið er að kenna eftir þörfum hvers og
eins þannig að nemandinn geti sem mest tekið þátt í almennum kennslustundum.
Faggreinakennari sér um það í samvinnu við námsverskennara að
námsefni sé við hæfi.
Námsverskennari sér um að nemendur fái auka íslenskukennslu og ef
nemandi hefur engan grunn í tungumálinu fara fyrstu tvær vikurnar að mestu leyti
fram í námsveri. Skólinn hvetur foreldra
til að leita tiltækra leiða til að nemendur fái markvissa þjálfun í eigin
móðurmáli og styður við móðurmálsþjálfun af fremsta megni.