Innskráning nemenda

Notandi:


Lykilorð:



Námsráðgjöf

Námsráðgjafi starfar í Réttarholtsskóla í fullu starfi. Námsráðgjafinn vinnur bæði með einstaklingum og hópum.
Námsráðgjafi liðsinnir nemendum í málum er snerta skólavist þeirra og veitir þeim ráðgjöf um hvernig þeir geti fengið úrlausn sinna mála.  Hann er skólastjórnendum til ráðgjafar í þeim málaflokkum er tengjast starfi hans.

Námsráðgjafi sinnir eftirfarandi verkefnum

  • veitir nemendum ráðgjöf um náms- og starfsval og fræðir þá um nám, störf og atvinnulíf
  • leiðbeinir nemendum um vinnubrögð í námi
  • veitir nemendum ráðgjöf í einkamálum þannig að þeir eigi auðveldara með að ná settum markmiðum í námi
  • tekur þátt í að skipuleggja náms- og starfsfræðslu í skólanum
  • kynnir nýjum nemendum skólann og býr nemendur undir flutning milli skóla og skólastiga með skipulögðum kynningum
  • aðstoðar nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhugasviðum og að meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf
  • aðstoðar við að skipa nemendum í bekki og ferðir
  • sinnir fyrirbyggjandi starfi, t.d. vörnum gegn vímuefnum, einelti og ofbeldi í samstarfi við aðra starfsmenn skólans
  • veitir foreldrum ráð varðandi nám og hegðun barna þeirra
  • situr fundi Nemendaverndarráðs
  • hefur samband og samráð við sérfræðinga innan og utan skólans og vísar málum til þeirra eftir ástæðum

Námsráðgjafi vinnur í samstarfi við foreldra eftir því sem við á. Einnig hefur hann samráð og samstarf við aðra sérfræðinga innan eða utan skólans, s.s. sérkennara, hjúkrunarfræðing, skólasálfræðing og vísar málum einstaklinga til þeirra í samráði við nemendur og foreldra. Námsráðgjafi á að gæta þagmælsku varðandi málefni sem hann vinnur með.
 Námsráðgjafi er Sigrún Ágústsdóttir.




Réttarholtsskóli | Réttarholtssvegi 108 Reykjavík | Sími 5532720 | Netfang: rettarholtsskoli[at]reykjavik.is