Heimanám nemenda og notkun dagbókar
Heimanám hefur margvíslegan tilgang og er mikilvægur þáttur í skólagöngu og námsárangri nemenda. Heimanám er meðal annars til þess fallið
- að veita nemendum tækifæri til að rifja upp og æfa það sem þeir hafa lært í skólanum
- að búa nemendur undir námið í skólanum
- að þjálfa nemendur í að afla sér þekkingar á eigin spýtur t. d. á bókasöfnum, netinu eða annars staðar
- að gefa nemendum tækifæri til að kafa dýpra í einstök viðfangsefni en tækifæri er til í skólanum
- að þjálfa nemendur í að nýta tímann vel og skipuleggja vinnu sína á eigin spýtur
- að leiðrétta það sem miður kann að hafa farið í skólanum þann daginn
- að styrkja tengsl heimila og skóla
Það er óumdeilt að áhugi foreldra og stuðningur við nám barna og unglinga eykur líkur á góðum námsárangri. Til að auðvelda börnum sínum að ná árangri í heimanámi geta foreldrar
- skapað góða vinnuaðstöðu, bjartan og kyrrlátan stað. Flestum ber saman um að sjónvarp eða tónlist trufli nemendur við nám sitt
- aðstoðað nemandann við að ákveða sérstakan tíma á degi hverjum til heimanáms. Leggja ber áherslu á að þann tíma sem heimanám stendur eiga önnur viðfangsefni að víkja til hliðar. Mikilvægt er að nægur tími sé ætlaður til verkefnanna til að draga úr líkum á að þau séu unnin í kapphlaupi við tímann. Sumum hentar að skipta heimanáminu niður á stuttar vinnulotur í stað þess að ljúka því öllu í einu
- talað jákvætt um heimanámið og beint hugmyndum sínum og athugasemdum um það sem þeir telja að betur megi fara til kennara en ekki til nemendanna
- látið börn sín finna að þeir kunni að meta það þegar þau ná árangri. Verðlaunum er rétt að beita í hófi og ættu foreldrar fremur að leggja áherslu á að menntun hefur gildi í sjálfri sér og hrósa börnum sínum þegar þau leggja sig fram við námið
Nemendur fá að hausti afhenta skóladagbók. Þar skrá þeir hjá sér heimanám í öllum greinum eftir því sem við á. Nauðsynlegt að færslur í dagbókina séu samviskusamlega unnar og að hún sé ávallt við höndina. Upplýsingar um heimanám er einnig að finna á upplýsingavefnum mentor.is