Innskráning nemenda

Notandi:


Lykilorð:



Félagslíf nemenda

Með félags- og tómstundastarfi í Réttarholtsskóla er stefnt að því að fá nemendur til að lífga upp á hversdagslífið og slá á léttari strengi með skólafélögunum auk þess að glæða frístundirnar áhugaverðum tómstundatilboðum. 

Stjórn Nemendafélagsins skipuleggur félagslífið, svo sem böll, bingó og félagsvist, jólaskemmtun og árshátíð auk annarra minni háttar skemmtikvölda. 

Samstarf er á milli Réttarholtsskóla og félagsmiðstöðvarinnar Bústaða, t.d. í sambandi við ferðalög, gæslu á skemmtunum í skólanum og árshátíðin er sameiginleg.

Bryndís Haraldsdóttir kennari hefur umsjón með félagslífi nemenda.

Dagskrá félagsstarfsins á vorönn 2010:

29. janúar: Söngvakeppni Kringlumýrarinnar (félagsmiðstöð)
11. febrúar: Ræðukeppni; Réttarholtsskóli gegn Seljaskóla.
12. febrúar: Skautaferð
18. febrúar: Ball
5.-6. mars: Samfésfestival
17. mars: Árshátíð.
31. maí: Lokaball

Skíðaferð fyrirhuguð einhvern tíma þegar vel stendur á. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Réttarholtsskóli | Réttarholtssvegi 108 Reykjavík | Sími 5532720 | Netfang: rettarholtsskoli[at]reykjavik.is