Forvarnarstefna
Réttarholtsskóli hefur undanfarið ár unnið að forvarnaráætlun í samstarfi við stofnanir og félagasamtök í hverfinu. Vinnan við áætlunina mun halda áfram næsta skólaár. Skólinn hefur sett sér 5 meginmarkmið til að vinna út frá í forvarnarstarfi:
1. Vinna gegn vímuefnaneyslu barna á grunnskólaaldri
- Skólinn og allir starfsmenn hans hafa tekið skýra afstöðu gegn vímuefnaneyslu ungmenna og láta hana í ljósi.
- Öll neysla vímuefna ávana- og fíkniefna er bönnuð í skólanum. Ef einhver verður uppvís að slíku eru foreldrar látnir vita.
- Ef starfsfólk fær ábendingar um reykingar eða fíkniefnaneyslu nemenda eru foreldrar látnir vita.
- Skipulögð fræðsla um skaðsemi vímuefna er fastur liður í skólastarfinu.
- Gestafyrirlesarar eru fengnir til að fjalla um hættur af neyslu tóbaks og vímuefna. Einnig eru sýndar leiksýningar og aðrir listrænir viðburðir sem tengjast þessu efni. Þá er farið með nemendur á kvikmyndasýningar í sama skyni og efni myndanna rætt.
- Reglulegar kannanir eru gerðar á slíkri neyslu unglinga í samvinnu við Félagsmiðstöðina Bústaði.
- Fræðslufundir eru haldnir árlega fyrir foreldra um forvarnarstarf og hættur samfara vímuefnaneyslu.
- Nemendur eru hvattir til að vinna að eigin vímu- og tóbaksvarnarstefnu.
2. Hvatning til hollra lífshátta og tómstunda
- Fjallað er um mikilvægi heilbrigðs lífernis í kennslu, t.d. í íþróttum, líffræði, heimilisfræði og lífsleikni.
- Áhersla er lögð á almenna þátttöku nemenda í félags- og tómstundastarfi og reynt er að hafa fjölbreytt framboð á viðfangsefnum.
3. Bætt samskipti og vinna gegn einelti
- Umsjónarkennarar vinna markvisst að því að efla góðan bekkjaranda og byggja upp persónuleg tengsl við nemendur sína.
- Unnið er að öflugri námsráðgjöf.
- Tekið er á eineltismálum í samvinnu starfsfólks og foreldra.
4. Samstarf í hverfinu
- Fulltrúar skólans vinna með fulltrúum stofnana og félagasamtaka í hverfinu og einnig Félagsþjónustunnar í Reykjavíkog Forvarnardeild lögreglu.
5. Foreldrar verði virkir þátttakendur í leik og starfi barna sinna
- Sameiginlegar skemmtanir og fundir fyrir foreldra og unglinga eru haldnar árlega.
- Stuðlað er að öflugu starfi bekkjarfulltrúa. Allir foreldrar fá lista yfir nöfn annarra nemenda í árganginum og nöfn foreldrafulltrúa í bekk.